Gleðilegt sumar

 

 Þetta er bara svo óskaplega fallegt að það verður aldrei of oft kveðið Heart

Dagný

Er sumarið kom yfir sæinn
og sólskinið ljómaði’ um bæinn
og vafði sér heiminn að hjarta,
ég hitti þig, ástin mín bjarta.

Og saman við leiddumst og sungum
með sumar í hjörtunum ungum,
hið ljúfasta’, úr lögunum mínum,
ég las það úr augunum þínum.

Og húmi um heiðar og voga,
mun himinsins stjörndýrð loga
um ást okkar, yndi og fögnuð,
þó andvarans söngrödd sé þögnuð.

 Lag og texti: Sigfús Halldórsson / Tómas Guðmundsson

Já þetta er fallegt og gott að njóta þess  bæði að hlusta á og syngja með.

Megi sumarið verða okkur öllum gæfuríkt og gott. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband