7.1.2009 | 12:40
Landlæknir og heilbrigðisþjónustan
Fyrirhugaðar eru umtalsverðar breytingar á heilbrigðisþjónustunni. Starfsfólk st. Jósefsspítala í Hafnarfirði hefur þegar látið í ljós óánægju með samskiptaleysið milli ráðuneytisins og spítalans. Skiljanlegt þegar orðrómur er um að miklar breytingar séu fyrirhugaðar. Í Morgunblaðinu í dag segir að skortur á upplýsingum hafi skapað óvisssu og kvíða um framtíð starfsfólks og skjólstæðinga þess. Eins og ekki sé nóg komið af slíku í kjölfar hrunsins. Ég velti því fyrir mér hvort landlæknir eigi ekki hlutverki að gegna þarna. Mér finnst lítið fara fyrir hans sjónarmiðum. Og vinnubrögð sem þessi, að halda fólkinu í óvissu eru ekki sæmandi. Landlæknir er hinn mætasti maður og ég skora á hann að láta til sín taka gegn þessum niðurskurði og gjaldtökuatgangi. Reyni að veita heilbrigðisráðherranum viðeigandi ráðgjöf. Það gengur ekki að limlesta heilbrigðiskerfið mitt í þeim hremmingum sem yfir þjóðina ganga. Nú er einmitt þörf á staðfestu og traustum grunni, þar sem saman fer fagleg kunnátta, reynsla og mannúð.
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnir umtalsverðar breytingar á skipulagi og verkaskiptingu í heilbrigðisþjónustunni í landinu á fundi með blaðamönnum í dag.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.