Frá vitund minni til vara þinna

Steinn Steinarr

Tíminn og vatnið

10.

Frá vitund minni
til vara þinna
er veglaust haf.

En draumur minn glóði
í dulkvikri báru,
meðan djúpið svaf.

Og falin sorg mín
nær fundi þínum
eins og firðblátt haf.

Það er gott að gleyma sér við ljóðalestur. 

Steinn er í miklu uppáhaldi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband