10.2.2011 | 21:48
Mubarak situr sem fastast.
Kemur sennilega fáum á óvart þessi ákvörðun forsetans. Það má segja sem er að enginn veit hvað við tekur þegar þessi maður sleppir tökunum. Eitt er víst að almenningur í landinu býr við bágborin kjör. Ferðamenn eru í hættu eins og hefur sýnt sig. Hermenn fylgja rútum með ferðamönnum og lögreglumenn eru allsstaðar. Dugir ekki allaf til.
Tilfinningin er að Mubaraks tími sé liðinn!
Hér á Ísalandinu eru hjú sem segja má að hafi lokið sínum tíma en þau bara skilja það ekki ennþá.
Mubarak segir ekki af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.