Undarleg framkoma

Þetta er stórundarleg framkoma við þá sem stóðu að stofnun Íslandshreyfingarinnar og voru á listum hennar í síðustu kosningum. 

Hvernig dettur þessu blessuðu fólki í hug að menn sætti sig við að nokkrar menneskjur ákveði fyrir hönd þeirra sem skráðir eru í flokkinn að hreyfingin verði undirdeild í samfylkingunni?

Stjórnin, hver og einn stjórnarmaður getur fyrir sitt leyti heitið sf fullum stuðningi í komandi kosningum en svona vitleysa er út í hött.

Það verður hreinlega að leggja þennan flokk niður, afskrá hann en ekki, alls ekki gera hann að undirdeild í öðrum flokki.

Ég  tel það yfirgang  og tillitsleysi að bendla fólk  sem var á listum flokksins við annan stjórnmálaflokk eins og stjórnin gerir nú.


mbl.is Íslandshreyfingin verður aðili að Samfylkingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband